Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina?
Vinnuskóli Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf flokkstjóra laus til umsóknar. Í störfunum felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga fæddum 2010 og 2011 við ýmis umhverfisstörf, Flokkstjórar þurfa að vera hvetjandi, stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri, hafi hreint sakavottorð, bílpróf ásamt því að búa yfir skilpulags- og leiðtogahæfileikum. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí n.k. og aðeins er tekið við rafrænum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir á netfangið helga.b@fjardabyggd.is