Stuðningsfulltrúi Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

side photo

Ert þú dugmikill einstaklingur sem hefur áhuga á að starfa með börnum? Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna í grunnskólum Fjarðabyggðar? Þá erum við að leita að þér!

Fjarðabyggð er öflugt, fjölkjarna sveitarfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni allra íbúa. Í hverjum kjarna Fjarðabyggðar er starfandi grunnskóli sem starfar náið með leik- og tónlistarskóla. Á Fáskrúðsfirði starfa leik-, grunn- og tónlistarskóli undir sama þaki en hvert skólastig hefur eigin stjórnanda. Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru rúmlega 100 nemendur í 1.-10. bekk. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu.

Helstu verkefni:

  • Námslegur stuðningur við nemendur á yngsta stigi með áherslu á íslensku, stærðfræði og raungreinar.
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við bekkjarkennara og foreldra.
  • Hefur hagsmuni nemenda að leiðarljósi, sýnir hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
  • Stuðningsfulltrúi starfa í samvinnu við bekkjarkennara.

Hæfniskröfur:

  • Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu er skilyrði
  • Faglegur styrkleiki í íslensku, stærðfræði og tungumálum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar nk.

Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf ásamt ábendingum um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Frekari upplýsingar veitir Ása Sigurlaug Harðardóttir skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar asash@skolar.fjardabyggd.iseða í síma: 7774214