Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Reyðarfjarðar

side photo

Um er að ræða u.þ.b. 80% starf yfirstandandi skólaár. Í skólanum eru rúmlega 200 börn í 1. - 10. bekk. Leitað er að einstaklingi sem er reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.grunnrey.is

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Helstu verkefni:

  • Námslegur stuðningur við nemendur á mið- og unglingastigi með áherslu á íslensku, stærðfræði og raungreinar.
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við bekkjarkennara og foreldra.
  • Hefur hagsmuni nemenda að leiðarljósi, sýnir hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
  • Stuðningsfulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra sérkennslu í samvinnu við bekkjarkennara.

Hæfniskröfur:

  • Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Faglegur styrkleiki í íslensku, stærðfræði og tungumálum.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar nk.

Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf ásamt ábendingum um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, asta@skolar.fjardabyggd.is.