Um er að ræða rúmlega 45% starf frá janúar 2025. Vinnutími er frá kl. 13:00-16:30. Frístund er staðsett í skólanum og þjónustar börn á yngsta stigi.
Helstu verkefni:
- Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir.
- Vinnur eftir áætlun sem er útbúin vegna sérþarfa nemanda.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs undir stjórn yfirþroskaþjálfa og deildarstjóra sérkennslu.
- Hefur hagsmuni nemenda að leiðarljósi, sýnir hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við bekkjarkennara og foreldra.
Hæfniskröfur:
- Sjúkraliðamenntun er æskileg.
- Reynsla af starfi með fötluðum börnum er skilyrði.
- Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 3. febrúar nk.
Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf ásamt ábendingum um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður deildarstjóri frístunda barna og unglinga, holmfridur@fjardabyggd.is.