Matráður við leikskólann Eyravelli

side photo

Eyrarvellir er 8 deilda leikskóli þar af 6 starfrækar og dvelja þar um 97 ásamt 30 starfsmönnum. Leikskólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Eyrarvellir vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Leikskólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni:

  • Sér um öll almenn störf í mötuneytinu, bakstur, þrif og að farið sé eftir matseðlum sveitafélagsins.
  • Þjálfar og útdeilir verkefnum til aðstoðarmatráðs í samráði við leikskólastjóra.
  • Útbýr sérfæði fyrir þá nemendur og starfsmenn sem þess þurfa af heilsufarsástæðum.
  • Ber ábyrgð á daglegum þrifum og mælingum á hitastigi fyrir HRAUST.
  • Heldur þvottahúsi, búri sem og kaffistofu starfsmanna snyrtilegu.

Menntun og hæfnisþættir:

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Menntun í matreiðslu er æskileg
  • Reynsla af matreiðslu er skilyrði.

Yfirmaður/matráður í eldhúsi er starfsmaður Fjarðabyggðar og starfar undir stjórn leikskólastjóra. Matráður skal gegna starfinu samkvæmt leikskólalögum, reglugerðum, starfslýsingu, kjarasamningum og starfsmannastefnu Fjarðabyggðar, eftir því sem við á. Hann er þátttakandi í uppeldisstarfi skóla gagnvart næringu og heilsu.

Um er að ræða 100 % stöðu sem matráður í eldhúsi leikskólans, starfið hentar öllum kynjum og hvetjum við áhugasama að sækja um.

Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar gefur:

Sigurlaug Björk Birgisdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1485 sigurlaugbb@skolar.fjardabyggd.is og Jóhanna Smáradóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 477-1485 eða johannas@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2024. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. febrúar. 2025.