Starfsmaður í búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk

side photo

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingum til starfa í búsetuþjónustu fatlað fólk í Fjarðabyggð. Verkefni búsetuþjónustunnar er að veita einstaklingum þjónustu við athafnir dagslegs lífs og veita þeim stuðning við að vera virkur þátttakandi í samfélaginu.

Unnið er eftir hugmyndafræðinni um Þjónandi leiðsögn með áherslu á að einstaklingum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Um er að ræða framtíðarstarf í vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir.

Í boði er 85% hlutfall í Neskaupstað og á Reyðafirði.

Starfslýsing:

  • Veita einstaklingum stuðning við athafnir daglegs lífs.
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
  • Starfa samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.
  • Virkja einstakling til þátttöku í samfélaginu.
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd.
  • Almenn heimilisstörf.

Hæfniskröfur:

  • Viðkomandi þarf að vera orðin 18 ára.
  • Hreint sakavottorð.
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
  • Mikilvægt að starfsmenn tali og skilji íslensku.

 

Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember 2024

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna. Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Eru umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.

Nánari upplýsingar veitir Anna Guðlaug, forstöðumaður búsetuþjónustu, í síma 844-4845 eða í gegnum netfangið anna.hjartardottir@fjardabyggd.is