Deildarstjóri á leikskóla Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

side photo

Leikskóli Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla óskar eftir deildarstjóra sem er reiðubúinn að ganga til liðs við lítinn samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtilegt og krefjandi starf með nemendum leikskólans. Við viljum búa börnum öruggt umhverfi þar sem þau fá svigrúm til að vaxa og þroskast. Í Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóla er góður starfsandi sem einkennist af jákvæðni og gleði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.

Ráðið er í stöðuna frá 1. desember 2024. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember. Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum LN eða KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Steinþór Snær Þrastarson skólastjóri steinthor@skolar.fjardabyggd.is í síma 8478662.