Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

side photo

Ert þú dugmikill einstaklingur með reynslu af stjórnun og kennslu í grunnskólum? Hefur þú brennandi áhuga á því að vinna með börnum? Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna í grunnskólum Fjarðabyggðar? Þá erum við að leita að þér!

Fjarðabyggð er öflugt, fjölkjarna sveitarfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni allra íbúa. Í hverjum kjarna Fjarðabyggðar er starfandi grunnskóli sem starfar náið með leik- og tónlistarskóla. Á Fáskrúðsfirði starfa leik-, grunn- og tónlistarskóli undir sama þaki en hvert skólastig hefur eigin stjórnanda. Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru rúmlega 100 nemendur í 1.-10. bekk. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu.

Helstu verkefni:

  • Ábyrgð á stefnumörkun skólans og gerð skólanámskrár.
  • Skipulag náms og kennslu í skólanum og þróun aðferða til innra mats skólans
  • Ábyrgð á starfsmannahaldi, ráðningu starfsfólks, frágangi ráðningarsamninga og starfslýsinga.
  • Undirbúningur fjárhagsáætlunar og að rekstur skólans sé í samræmi við hana á hverjum tíma.
  • Skipuleggur sérfræðiþjónustu og hefur forystu um gerð lögbundinna áætlana.
  • Ábyrgð á frístunda og starfsemi þess
  • Er næsti yfirmaður umsjónarmanna bókasafnanna
  • Hefur forgöngu um samstarf heimilis og skóla.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg.
  • Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg.
  • Góð málakunnátta (íslenska og enska) og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
  • Þekking á rekstri, stjórnun og stefnumótun.
  • Þekking á undirbúningi og stjórnun funda.
  • Þekking á helstu upplýsingakerfum sem notuð eru í skólum Fjarðabyggðar.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2024 en ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2025.

Nafn stjórnenda sem veitir upplýsingar / netfang / símanúmer: Anna Marín Þ. Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu. anna.thorarinsdottir@fjardabyggd.is sími: 8692679