Frístundaleiðbeinandi við Eskifjarðarskóla

side photo

Laus er til umsóknar 50% staða frístundaleiðbeinanda við Eskifjarðarskóla. Starfið er í lengdri viðveru, Dvölinni eftir hádegi. Við Eskifjarðarskóla starfar samhentur hópur starfsfólks. Við skólann starfa 38 starfsmenn og í skólanum eru um 150 nemendur.

Eskifjörður er einn af byggðarkjörnum Fjarðabyggðar. Þar er góður leik- og grunnskóli. Í Fjarðabyggð er öflugt íþrótta- og tómstundastarf og ókeypis samgöngur innan Fjarðabyggar. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingarmöguleika. Á Eskifirði er einnig ein besta sundlaug á Íslandi.

Helstu verkefni

  • Aðstoðar yfirmann frístundar við dagleg störf í frístund
  • Hjálpar nemendum við að skipuleggja og framkvæma ýmis þroskandi verkefni
  • Gefur nemendum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt inni sem úti
  • Aðstoðar nemendur í kaffi-og matartímum
  • Gætir fyllsta öryggis í vinnu með nemendum og forðast þær aðstæður sem geta reynst geta hættulegar.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Færni í að eiga gott samstarf við stjórnendur og samstarfsmenn.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 29. október nk.

Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.

Allar nánari upplýsingar gefa: Sigrún Traustadóttir skólastjóri s. 470-9152 eða á sigrun@skolar.fjardabyggd.is 

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamning Íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Heimasíða Eskifjarðarskóla er hér: www.grunnesk.is