Leikskólakennarar Leikskólann Lyngholt

side photo

Leikskólinn Lyngholt á Reyðarfirði leitar eftir ferskum og drífandi einstaklingum til að koma til starfa við skólann. Lyngholt er um 90 nemenda skóli sem skipaður er góðu og metnaðarfullu fagfólki.

Skólinn er staðsettur í glæsilegur nýlegu húsnæði við Heiðarveg á Reyðarfirði þar sem aðstaða til leiks og starfa er til fyrirmyndar. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis.

Helstu verkefni:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Vakin er athyglir á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa er leitað eftir einstaklingum með aðra kennaramenntun, menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfið

Fríðindi:

  • Starfsmenn fá greiðslur fyrir að matast með börnum.
  • Vinnutímastytting, er hægt að taka út daglega, vikulega, mánaðarlega eða safna í lengri frí.
  • Sex skipulagsdagar eru á ári.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar gefur:

Lísa Lotta Björnsdóttir skólastjóri, lisalotta@skolar.fjardabyggd.is s. 474 1257/860 3176

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til og með 23. október  Um er að ræða 100 % stöður og lausar sem fyrst eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstörf.

Sótt er rafrænt á ráðningarvef Fjarðabyggðar