List- og verkgreinakennara í Nesskóla

side photo

Nesskóli í Neskaupstað óskar eftir að ráða list- og verkgreinakennara í fullt starf frá 1.ágúst

Í Nesskóla eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði of orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms. Leitað er að einstakling með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við kennara, foreldra og stjórnendur skólans.

Skólastarf Nesskóla miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.nesskoli.is

Neskaupstaður er í Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.
  • Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði á stigi C-1.
  • Samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum æskileg.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024. Umsóknarfrestur er til og með 8. maí nk.

Umsóknum um starfið skal fylgja starfsferilskrá, kynningarbréf, leyfisbréf til kennslu, og meðmælendur. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veita Karen Ragnarsdóttir skólastjóri, karen@skolar.fjardabyggd.is og Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir aðstoðarskólastjóri, thorfridur@skolar.fjardabyggd.is, einnig í síma 477-1124.