List- og verkgreinakennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

side photo

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar óskar eftir að ráða list- og verkgreinakennara. Leitað að kennurum með starfshæfni í smíðum, myndmennt, textílmennt, heimilisfræði og jafnvel tæknilegó.

Í skólanum eru rúmlega 100 börn í 1.-10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og áhersla lögð lögð á fjölbreytta kennsluhætti sem samkvæmt aðferðum leiðsangarnáms. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til leiðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Fáskrúðsfjörður er einn af byggðarkjörnum Fjarðabyggðar. Þar er góður leik- og Grunnskóli, sem mikið samstarf er á milli. Í Fjarðabyggð er öflugt íþrótta- og tómstudnastarf og ókeypis samgöngur innan fjarðabyggðar. Stutt er í ósnotna náttúru sem og fjölbreytta afþreyingamöguleika. Á Fáskrúðsfirði er eina inni sundlaug Fjarðabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá Grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda
  • Af hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðinu, áhuga og umhyggju

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi
  • Skipulagshæfileikar
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga

Umsóknarfrestur er til og með 8. maí nk.

Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið

Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst, 2024

Nánari upplýsingar veita Eydís Ósk Heimisdóttir Skólastjóri, eydish@skolar.fjardabyggd.is og Ásta Kristín Guðmundsd. Michelsen aðstoðarskólastjóri, astakg@skolar.fjardabyggd.is, einnig í síma 475-9020