Umsjónakennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

side photo

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar óskar eftir að ráða umsjónakennara við skólann. Við leitum að kennurum með starfshæfni á yngsta stigi, miðstigi og elstastigi. Reynsla af kennslu á viðkomandi stigum er æskileg.

Í skólanum er rúmlega 100 börn í 1.-10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og áhersla á fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Fáskrúðsfjörður er einn af byggðarkjörnum Fjarðabyggðar. Það er góður leik- og Grunnskóli og ríkir gott samstarf þar á milli. Í Fjarðabyggð er öflugt íþrótta- og tómstundastarf og ókeypis samgöngur innan Fjarðabyggðar. Stutt er í ósnorta náttúru sem og fjölbreytta afþeyingamöguleika. Á Fáskrúðsfirði er eina inni sundlaug Fjarðabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.
  • Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg
  • Góð tök á íslensku máli, rituðu og skrifuðu
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi
  • Skipulagshæfileikar
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 6. maí

Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru kvattir til að sækja um starfið.

Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2024

Nánari upplýsingar veita Eydís Ósk Heimisdóttir skólastjóri, eydísh@skolar.fjardabyggd.is og Ásta Kristín Guðmundsd. Michelsen aðstoðarskólastjóri, astakg@skolar.fjardabyggd.is, einnig í síma 475-9020.