Aðstoðarmatráður í Skólamötuneyti Fáskrúðafjarðar

side photo

StarfslýsingSkólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar, leik,- grunn- og tónlistarskóla leitar eftir áhugasömum, jákvæðum og sjálfstæðum aðilum í starf aðstoðarmatráða. Um hlutastarf er að ræða.

Skólamötuneytið þjónustar um 45 starfmenn og 150 nemendur skólamiðstöðvarinnar.

Hæfniskröfur:

  • Þekking og reynsla af matseld og næringu.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Íslensku kunnátta.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.

Helstu verkefni:

  • Umsækjandi vinnur undir stjórn yfirmatráðs.
  • Sér um almenn þrif í eldhúsi, gengur frá matvörum og aðstoðar við matseld.
  • Hefur umsjón með ýmsum öðrum verkefnum sem yfirmenn hans segja til um og samkvæmt starfslýsingu.

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 12. ágúst næst komandi

Umsóknarfrestur er til og með 12. maí næst komandi.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Eggertsdóttir leikskólastýra, í síma 475 9055/868 3297 á netfangið astae@skolar.fjardabyggd.is eða Guðný Elísdóttir í síma 475 9055, netfang gudny@skolar.fjardabyggd.is