List- og verkgreinakennarar við Grunnskóla Reyðarfjarðar

side photo

Grunnskóli Reyðarfjarðar óskar eftir að ráða list- og verkgreinakennara fyrir skólaárið 2024-2025. Leitað er að kennurum með starfshæfni í smíðum, myndmennt, tæknilegó og hreyfingu/leikjum.

Í skólanum eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði of orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.grunnrey.is

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2024.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.
  • Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 5. maí nk. 

Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veita Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, asta@skolar.fjardabyggd.is og Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastjóri, gudlaug@skolar.fjardabyggd.is, einnig í síma 470-9200.