Eyrarvellir er 8 deilda skóli með 6 starfrækar deildar. Leikskólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Hann er staðsettur við Nesgötu í Neskaupstað og er Nesskóli í næsta nágrenni og er gott samstarf á milli skólanna. Eyrarvellir vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Leikskólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
- Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntun og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.
Fríðindi:
- Starfsmenn fá greiðslur fyrir að matast með börnum.
- Vinnutímastytting, er hægt að taka út daglega, vikulega, mánaðarlega eða safna í lengri frí.
- Sex skipulagsdagar eru á ári.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar gefur: Sigurlaug Björk Birgisdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1485 sigurlaugbb@skolar.fjardabyggd.is og Jóhanna Smáradóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 477-1485 eða johannas@skolar.fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí. 2024. Staðan er laus frá 1 ágúst eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf.