Deildastjóri við leikskólann Kærabæ

side photo

Kæribær er tveggja deilda skóli með um 40 nemendur og er opinn frá kl. 7:45 til 16:15. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu starfsfólki. Skólinn er staðsettur í skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar þar sem er ásamt leikskóla, tónlistarskóli, grunnskóli, bókasafn og mötuneyti. Mikið og gott samstarf er á milli stofnanana. Kæribær vinnur samkvæmt uppeldisaðferðinni Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni:

  • Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og uppeldisstefnu Fjarðabyggðar.
  • Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi leikskólans og ber ábyrgð á deildarstarfi.
  • Deildarstjóri annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
  • Deildarstjóri hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  • Deildarstjóri ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu í leikskóla (leyfisbréf fylgi umsókn).
  • Góð íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Þekking á uppeldisstefnum Fjarðabyggðar er æskileg.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi:

  • Starfsmenn fá greiðslur fyrir að matast með börnum.
  • Vinnutímastytting, er hægt að taka út vikulega, mánaðarlega eða safna í lengri frí.
  • Sex skipulagsdagar eru á ári.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Um er að ræða 100 % stöðu.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2024. Staðan er laus frá 9. ágúst eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf.

Nánari upplýsingar gefa:

Ásta Eggertsdóttir, leikskólastýra í síma 475-9055 eða astae@skolar.fjardabyggd.is 

Guðný Elísdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 475-9055 eða  guðny@skolar.fjardabyggd.i

 

https://kaerib.leikskolinn.is