Leikskólakennari við leikskólann Kærabæ

side photo

Kæribær er tveggja deilda skóli með um 40 nemendur og er opinn frá kl. 7:45 til 16:15. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu starfsfólki. Skólinn er staðsettur í skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar þar sem er ásamt leikskóla, tónlistarskóli, grunnskóli, bókasafn og mötuneyti. Mikið og gott samstarf er á milli stofnanana. Kæribær vinnur samkvæmt uppeldisaðferðinni Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs.
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn).
  • Góð íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg.
  • Jákvæðni og góð færni í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi:

  • Starfsmenn fá greitt fyrir að matast með börnum.
  • Vinnutímastytting er hægt að taka út vikulega, mánaðarlega eða safna í lengri frí.
  • Sex skipulagsdagar eru á ári.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Um er að ræða 100 % stöðu.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2024. Staðan er laus frá 9. ágúst eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf.

Nánari upplýsingar gefa Ásta Eggertsdóttir, leikskólastýra í síma 475-9055 eða astae@skolar.fjardabyggd.is eða Guðný Elísdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 475-9055, guðny@skolar.fjardabyggd.is