Leikskólakennarar við Dalborg

side photo

Leikskólinn Dalborg auglýsir eftir leikskólakennurum til starfa.

Dalborg er 60 nemenda skóli sem skiptist á 4 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Dalborg vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

 

Verkefni

  • Vinnur undir stjórn deildarstjóra að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Situr starfsmannafundi, deildarfundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varða starfsemi leikskólans.
  • Samstarf við foreldra/forráðamenn barna á leikskólanum.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Fríðindi:

  • Starfsmenn fá greitt fyrir að matast með börnum.
  • Vinnutímastytting, er hægt að taka út daglega, vikulega, mánaðarlega eða safna í lengri frí.
  • Sex skipulagsdagar á ári.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. 

Nánari upplýsingar gefur Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á thordismb@skolar.fjardabyggd.is og Helena Rós Rúnarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 476-1341 eða á helena@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 18. maí næst komandi og eru umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst. Um er að ræða framtíðarstarf.