Leikskólakennari við leikskólann Lyngholt

side photo

Lyngholt er 94 nemenda skóli sem skiptist á 6 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Skólinn er staðsettur í nýlegu húsnæði við Heiðarveg. Grunnskóli Reyðarfjarðar er í næsta nágrenni við skólann og á milli stofnana er mikið og gott samstarf. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

 

Helstu verkefni:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Starfsmenn fá greitt fyrir að matast með börnum.

Umsóknarfrestur er til 31. maí

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veita Lísa Lotta Björnsdóttir skólastjóri, lisalotta@skolar.fjardabyggd.iss. 474 1257/860 3176 og

Gerður Ósk Oddsdóttir aðstoðarskólastjóri, gerdur@skolar.fjardabyggd.is s. 474 1257.