Vinnuskóli Fjarðabyggðar 2024

side photo

Vinnuskólinn verður starfandi frá 05. júní - 9. ágúst.

Vinnufyrirkomulag: Störf tengd umhverfismálum - 85% vinna og fræðsla 15%.

14 ára getur valið um vinnu í fimm vikur - 4 vinnuvikur og 1 fræðsluvika á vegum sjávarútvegsskólans.

Vinnutími er frá 08:00- 12:00

15 ára getur valið um vinnu í sex vikur - 5 vinnuvikur og 1 fræðsluvika. Boðið verður uppá fræðslu í lífsleikni.

Vinnutími er frá 08:00- 12:00

 

Unglingar sem eru með lögheimili í sveitarfélaginu hafa öll rétt til þátttöku í vinnuskólanum.

Unglingar með lögheimili utan sveitarfélagsins þurfa að sækja sérstaklega um leyfi til þátttöku og verða umsóknir þeirra teknar til greina út frá fjölda umsókna.

Foreldrar velja upphafsdag vinnuskólans í umsóknarferlinu.

 

Næsti yfirmaður Vinnuskólans er garðyrkjustjóri.

Frekari upplýsingar um Vinnuskólann veitir Helga Björk Einarsdóttir,

Garðyrkjustjóri helga.b@fjardabyggd.is