Garðyrkjudeild Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf laus til umsóknar. Í störfunum felst almenn garðyrkjustörf og vinna við fegrun bæjarfélagsins t.d sláttur og umhirða grænna svæða.
Sumarstörfin í garðyrkjudeildinni eru ætluð ungu fólki fæddu 2007 og eldri. Umsækjendur þurfa að vera stundvísir og samviskusamir, búa yfir almennri kurteisi og hæfni í samskiptum. Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni er mikill kostur ásamt áhuga á umhverfismálum. Umsóknarfrestur er til og með 16. júní n.k. Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir helga.b@fjardabyggd.is