Langar þig að starfa með börnum í sumar?
Í boði er sumarstarf í 100% stöðu.
Starfið í sumarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri.
Sumarfrístundin er fyrir börn sem eru að ljúka 1. - 4. bekk skólaárið 2022-2023 og börn sem eru að útskrifast úr leikskóla eiga kost á því að sækja sumarfrístund eftir sumarlokun leikskólans.
Sumarfrístundin er opin frá og með miðvikudeginum 7. júní til og með föstudagsins 18. ágúst.
Helstu verkefni
- Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafn úti sem inni.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
- Að hafa hag og jafnrétti barnanna að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
Hæfnis- og menntunarkröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi æskileg.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Færni í samskiptum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum. Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2023
Nánari upplýsingar veitir Eyrún Inga Gunnarsdóttir forstöðumaður tómstunda- og frístundamála í síma 470 9000 eða í gegnum netfangið eyruninga@fjardabyggd.is