Leitast er eftir því að ráða frístundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar.
Auglýst er eftir starfsfólki sem tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd félagsmiðstöðvastarf í Fjarðabyggð í nánu samstarfi við verkefnastjóra félagsmiðstöðva.
Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.
Um er að ræða 1-3 vaktir í viku að kvöldi til.
Gott er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir vöktum í félagsmiðstöðvum.
- Hefur umsjón með ákveðnum hópum, verkefnum og viðburðum tengdum menningar-, félags-, og tómstundastarfi í félagsmiðstöðvum í samstarfi við verkefnastjóra og aðra starfsmenn.
- Skipuleggur og mótar frítímastarf fyrir börn og unglinga í samstarfi við verkefnastjóra félagsmiðstöðva.
- Sækir viðburði með börnum og unglingum á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
- Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frítímastarfi.
- Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Diplómanám í uppeldis- eða tómstundafræðum eða sambærilegu námi æskilegt.
- Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Inga Gunnarsdóttir, deildarstjóri tómstunda- og forvarnarmála á netfanginu eyrun.i.gunnarsdottir@fjardabyggd.is