Sumarstörf í garðyrkjudeild ungmenni fædd 2008 og eldri

side photo

Garðyrkjudeild fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf laus til umsóknar. Í störfunum felst almenn garðyrkjustörf og vinna við fegrun bæjarfélagsins t.d sláttur og umhirða grænna svæða.

 

Verkefni:

  • Almenn garðyrkjustörf
  • Sláttur og umhirða grænna svæða

Hæfniskröfur:


  • Sumarstörfin í garðyrkjudeildinni eru ætluð ungu fólki fæddu 2008 og eldri.
  • Umsækjendur þurfa að vera stundvísir og samviskusamir, búa yfir almennri kurteisi og hæfni í samskiptum.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni er mikill kostur ásamt
  • Áhuga á umhverfismálum.

Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin. Umsóknarfrestur er til og með 13. maínæstkomandi.

Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir helga.b@fjardabyggd.is